Geðheilsuteymi ADHD
Efnisyfirlit
Þjónusta
Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna veitir annarrar línu þjónustu fyrir einstaklinga 18 ára og eldri um land allt.
Teymið sérhæfir sig í greiningu og meðferð á taugaþroskaröskuninni athyglisbresti/ofvirkni (ADHD).
Aðeins er tekið við tilvísunum frá heimilis- og heilsugæslulæknum.
Gjald fyrir ADHD greiningu / þjónustu teymisins er 29.223 krónur burtséð frá fjölda heimsókna.
Fyrsta skrefið er að bóka tíma hjá þinni heilsugæslu og skila inn nauðsynlegum fylgigögnum.
Ef endurmeta þarf ADHD greiningu sem þú fékkst sem barn, þarf að skila inn öllum gögnum varðandi fyrri greiningu séu þau ekki til staðar í sjúkraskrá.
Ef þú fékkst greiningu og lyfjameðferð á fullorðinsárum en lyfjaskírteini er ógilt og þarfnast endurmats, þarf læknabréf frá fyrri meðferðaraðila og/eða gögn til staðfestingar svo hægt sé að meta áframhald innan ADHD teymisins.
Geðheilsuteymi ADHD tekur ekki við eða metur greinargerðir sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna.
Fylgigögn
Til að tilvísun vegna frumgreiningar fullorðinna eða endurmats barnagreiningar teljist fullnægjandi, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja:
Eyðublað skjólstæðings + Samþykkisblað - Skjólstæðingur fyllir út
Hegðunarmatskvarðar A og B - Skjólstæðingur fyllir út
Hegðunarmatskvarðar C og D - Aðstandandi fyllir út
Ef enginn aðstandandi er til staðar til að fylla út hegðunarmatskvarða C og/eða D þarf að láta teymið vita af því..
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta, þverfaglegri samvinnu starfsmanna teymisins og samstarfsaðila á öðrum stigum heilbrigðisþjónustu.
Samsetning fagstétta hverju sinni getur verið mismunandi en oftast geðlæknar, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar.
Teymið veitir einnig ráðgjöf og fræðslu til annarra fagstétta.
Hlutverk Geðheilsuteymis ADHD er:
Að annast frumgreiningu og meðferð vegna ADHD hjá fullorðnum.
Endurmat vegna ADHD greininga frá barnsaldri.
Endurmat vegna ADHD meðferðar á fullorðinsaldri, hafi rof orðið í meðferð og lyfjaskírteini runnið út.
Að veita mat vegna áframhalds á ADHD lyfjameðferð fyrir einstaklinga sem flytja til Íslands með ADHD greiningu og lyfjameðferð.
Teymið metur einkenni ADHD yfir æviskeiðið til að kortleggja áskoranir og hamlanir.
Okkar markmið eru:
Að tryggja að greining sé ferli athugana, prófana og viðtala auk upplýsingaöflunar frá þverfaglegu teymi með sérþekkingu í ADHD.
Að tryggja að greining sé kortlagning á styrkleikum og veikleikum í samhengi við umhverfisþætti.
Að tryggja að tilgangur greiningar sé að svara hvort að skjólstæðingur hafi frávik, hve hamlandi þau eru og hvaða úrræði gætu gagnast.
Að stuðla að því að eftir greiningu séu úrræði sem efla skjólstæðing í vinnu/námi, samböndum, félagslegum tengslum, frítíma/áhugamálum og sjálfstrausti/sjálfsmynd.
Teymisstjóri: Sigurður Ýmir Sigurjónsson
Yfirlæknir: Elvar Daníelsson
Skrifstofustjóri: Erla Dögg Halldórsdóttir
Þau sem flytja til Íslands með ADHD greiningu og lyfjameðferð þurfa mat sérfræðilæknis svo hægt sé að sækja um lyfjaskírteini og veita áframhaldandi lyfjameðferð á Íslandi. Gerðar eru eftirfarandi kröfur varðandi fylgigögnin sem þurfa að berast teyminu:
Læknabréf eða greiningargögn sem staðfesta greiningu á norðurlandatungumáli, ensku eða þýdd yfir á íslensku af löggildum þýðanda.
Lyfjasaga og núverandi lyf frá meðferðaraðila á norðurlandatungumáli, ensku eða þýdd yfir á íslensku af löggildum þýðanda.
Upplýst samþykkisblað fyrir þjónustu teymisins.
Gerð er krafa um:
að greiningin samræmist hefðbundnu greiningarferli
að gögn sýni að viðkomandi sé á viðeigandi lyfjum í réttum skammti
að lyfjameðferð sé orðin gagnreynd og stöðug.
Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna áskilur sér rétt til að hafa samband við greiningar- og/eða meðferðaraðila sem undirritaði gögnin sem skilað er inn og/eða vísa frá beiðnum sem uppfylla ekki kröfur.
Teymið vísar frá beiðnum varðandi:
Áframhaldandi meðferð fyrir fólk búsett á Íslandi sem hefur á ferðalagi erlendis, fengið greiningu og einstaka lyfseðla.
Einstaklinga sem hlotið hafa greiningu en ekki fengið neina lyfjameðferð.
Einstaklinga sem eru ekki útskrifaðir frá sínum meðferðaraðila og eru enn í aðlögun á lyfjaskammti.
Þessir einstaklingar þurfa beiðni um greiningarferli hjá ADHD teymi.
