Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Þátttaka í krabbameinsskimunum aukist mikið

9. mars 2026

Þátttaka í skimunum fyrir bæði brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini hefur aukist verulega síðustu ár og nálgast nú markmið um þátttöku.

Embætti landlæknis hefur gefið út gæðavísa um krabbameinsskimanir fyrir árið 2025. Þar kemur fram að þátttaka kvenna í skimunum fyrir leghálskrabbameini var 70 prósent. Þátttakan hefur aukist um sex prósentustig milli ára og hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár.

Konur á aldrinum 23 til 64 ára fá reglulega boð í leghálsskimun. Skimanirnar fara fram á heilsugæslustöðvum um land allt.

Þátttakan í skimunum fyrir brjóstakrabbameini var 65 prósent á síðasta ári og hefur aukist um fjögur prósentustig milli ára. Þátttakan í brjóstaskimunum hefur hækkað hratt síðustu ár.

Konur á aldrinum 40 til 74 ára fá reglulega boð í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Skimanir fara fram hjá Brjóstamiðstöð Landspítalans, á Sjúkrahúsinu á Akureyri og í færanlegri skimunarstöð sem fer reglulega um landið.

Nálgumst markmiðið

Samhæfingarstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins heldur utan um krabbameinsskimanir á landinu öllu. Markmið samhæfingarstöðvarinnar er að þátttaka í skimunum verði 75 prósent að lágmarki. Með aukinni þátttöku á síðasta ári er það markmið að nálgast.

„Það er afskaplega jákvætt að sjá þessa miklu aukningu í þátttöku í skimunum fyrir krabbameini á síðasta ári,“ segir Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana. „Við erum að þokast jafnt og þétt upp á við. Þar vinna margar hendur gott verk, enda hefur þurft samstarf og samstillt átak fjölmargra sem koma að þessum skimunum og hvetja til þeirra á síðustu árum.“

Flestar ætla að mæta

Kannanir sýna að lang flestar konur sem fá boð í skimun ætla sér að mæta, en að sumar þeirra fresti því að koma í skimun af einhverjum ástæðum.

„Það er gríðarlega mikilvægt að konur komi í skimun fyrir krabbameinum þegar boðið berst. Skimanir draga úr sjúkdómsbyrði og dauðsföllum af völdum krabbameina. Við sjáum að allar spár gera ráð fyrir því að krabbamein verði sífellt algengari á næstu árum. Það er því meiri ástæða en nokkru sinni fyrr að koma í skimun,“ segir Ágúst Ingi.

Gott aðgengi er lykilatriði þegar kemur að skimunum. Allar upplýsingar um krabbameinsskimanir eru auðfundnar á vefnum skimanir.is. Auðvelt er að bóka tíma þegar boðið berst. Tímar í leghálssýnatöku eru bókaðir í gegnum Heilsuveru. Tímar í brjóstaskimun eru bókaðir á vefnum brjostaskimun.is.

Erlendar konur koma síður

Mikill munur er á þátttöku kvenna í krabbameinsskimunum eftir ríkisfangi. Þannig var þátttaka íslenskra kvenna í leghálsskimun um 81 prósent á síðasta ári en hjá konum af erlendum uppruna var þátttakan 34 prósent. Þá tóku um 71 prósent íslenskra kvenna þátt í brjóstaskimun, samanborið við 25 prósent erlendra kvenna.

„Ef við skoðum tölurnar yfir þátttöku íslenskra kvenna í skimununum kemur í ljós að við höfum náð markmiðum okkar um 75 prósenta þátttöku í leghálsskimun, og erum raunar komin vel yfir það markmið. Við færumst svo nær því að ná markmiðinu í brjóstaskimun,“ segir Ágúst Ingi.

Þjónustan aðlöguð

„Hlutfallið hjá konum með erlent ríkisfang er að aukast en við sjáum að þar höfum við áfram mikið verk að vinna við að auka þátttöku í skimunum,“ segir Ágúst Ingi. Hann bendir á að konur með erlent ríkisfang fari í einhverjum mæli í skimanir í sínu heimalandi. Geri þær það ekki þurfi að kynna fyrir þeim möguleika á skimunum hér á landi og hvetja þær sérstaklega til þátttöku hér á landi.

Auk þess að beina auglýsingum og kynningarefni að konum með erlent ríkisfang hefur verið reynt að aðlaga þjónustuna að þeirra þörfum. Þannig hefur til dæmis gefið góða raun að bjóða upp á opna tíma í leghálssýnatöku á heilsugæslustöðvum. Þar geta konur sem hafa fengið boð mætt á stöð sem hentar þeim án þess að bóka tíma, í sumum tilvikum eftir hefðbundinn vinnutíma. Upplýsingar um opnu húsin eru aðgengilegar á vefnum skimanir.is.

Konur hvetji konur til að mæta

„Þó það sé gott að sjá að þátttaka í skimunum er að aukast megum við ekki sofa á verðinum. Við þurfum áfram að hvetja konur til að mæta í skimun, og til að spjalla við vinkonur, mæður, dætur og frænkur og minna á skimunina. Svo væri ekki síður tilvalið að spjalla við erlendar vinkonur eða samstarfskonur og hvetja þær til að mæta,“ segir Ágúst Ingi.

Gæðavísar embættis landlæknis eru aðgengilegir á síðu embættisins.