Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Almennt

Skráning vinnuveitanda á persónuupplýsingum um starfsmenn getur talist eðlilegur þáttur í starfsemi hans.

Vinnuveitandi getur þurft að vinna með ýmsar upplýsingar um starfsmenn, meðal annars til að:

  • tryggja réttindi starfsfólks,

  • uppfylla lögbundnar kröfur,

  • tryggja öryggi,

  • viðhalda skilvirkni á vinnustað.

Tilgangur skráningar og söfnunar verður að vera skýr og má ekki vera meiri en nauðsynlegt er. Starfsfólk þarf að vera upplýst um skráningu og fá fræðslu.

Upplýsingar sem vinnuveitandi má safna og skrá

Dæmi um upplýsingar sem almennt eru taldar eðlilegar og viðeigandi fyrir vinnuveitendur að hafa:

  • Grunnupplýsingar um starfsfólk: Nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang

  • Upplýsingar tengdar starfi: Stöðuheiti, starfslýsing, starsfaldur hjá fyrirtæki, launakjör, vinnutími og vaktafyrirkomulag.

  • Ráðningargögn og hæfniskröfur: Ferilskrá, umsagnir, upplýsingar um menntun, reynslu og hæfni sem tengist starfinu.

  • Launa- og skattaupplýsingar: Launatekjur, launaseðlar, skattafærslur, lífeyrissjóðsgreiðslur og aðrar greiðslur tengdar starfskjörum.

  • Fjarveruskráning: Skrá yfir veikindadaga, orlofsdaga og aðra leyfisfjarvistir.

  • Öryggis- og aðgengisupplýsingar: Aðgangsheimildir að byggingum eða tækjum og öryggisupplýsingar tengdar starfi.

  • Upplýsingar um árangur og frammistöðu: gögn úr starfsmannasamtölum, mat á frammistöðu, umbun eða áminningar ef við á.

  • Heilsufarsupplýsingar: Aðeins ef þær eru nauðsynlegar, eins og til dæmis upplýsingar um veikindaleyfi eða aðstæður sem hafa áhrif á vinnuframlag starfsfólks í samræmi við lög.

Ábyrgð vinnuveitanda

Vinnuveitandi skal upplýsa starfsfólk um hvaða upplýsingum er safnað og í hvaða tilgangi. Upplýsingarnar má aðeins nota í þeim tilgangi sem þeim er safnað og telst nauðsynlegur fyrir starfsemina. Vinnuveitandi skal tryggja trúnað og öryggi upplýsinganna.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820