Samgöngustofa hefur gefið út upplýsingaefni um notkun dróna. Upplýsingaefnið sýnir á einfaldan hátt nokkur grunnatriði sem þarf að hafa í huga þegar flug er undirbúið og á meðan á því stendur.
Upplýsingar um flug dróna í íslenskri náttúru og vernduðum svæðum má finna á vefsíðu Umhverfisstofnunar.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur sett fram reglugerð nr. 990/2017 um starfrækslu fjarstýrðra loftfara. Þar eru settar reglur um starfrækslu fjarstýrðra loftfara með það að markmiði að tryggja flugöryggi og öryggi og réttindi borgaranna. Reglugerðin tók gildi 15. desember 2017 og gildir um flug fjarstýrðra loftfara á Íslandi og innan íslenskrar lofthelgi. Undanþegin eru loftför sem vega minna en 250 g.
Helstu atriði
Auðkenna þarf dróna með nafni, heimilisfangi og símanúmeri.
Óheimilt er að fljúga drónum innan tiltekinna fjarlægða frá svæðamörkum flugvallar án leyfis frá rekstraraðila flugvallarins. Þó þarf ekki sérstakt leyfi ef aðeins er flogið neðar en hæstu mannvirki í nágrenni flugferils drónans.
Nálægðartakmarkanir, 2 km, eru við alþjóðaflugvelli en 1,5 km við aðra áætlunarflugvelli. Alþjóðaflugvellir á Íslandi (2 km) eru Keflavíkurflugvöllur, Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur.
Tryggja skal að notkun dróna valdi ekki óþarfa ónæði, skaði fólk eða dýr né valdi tjóni á eignum. Í þessu skyni skal áður en flug er framkvæmt, skilgreina starfrækslusvæði þannig að tryggð sé nægjanleg fjarlægð frá fólki, dýrum, mannvirkjum og eignum.
Heimildir til flugs í grennd við íbúðarhúsnæði eða annars staðar þar sem fólk dvelst og á athafnasvæðum gilda almennar reglur um vernd eignarréttar, friðhelgi einkalífs og persónuverndar.