Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. september 2025

Starfsdagur sýslumanna – lokað föstudaginn 3. október

Sýslumenn á landsvísu halda sameiginlegan starfsdag föstudaginn 3. október.

Af þeim sökum verða allar skrifstofur sýslumanna lokaðar þann 3. október 2025.

Við opnum aftur mánudaginn 6. október á hefðbundnum afgreiðslutíma.

Einnig loka sumar skrifstofur fyrr fimmtudaginn 2. október vegna ferða starfsfólks en nánari upplýsingar um afgreiðslutíma einstakra embætta má finna á island.is/s/syslumenn/embaettin

Bent er á að opið er allan sólarhringinn hér á vefsíðunni Sýslumenn.is þar sem hægt er að nálgast umsóknir í sjálfsafgreiðslu.
Spjallmennið Askur svarar einnig ýmsum fyrirspurnum.