Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. febrúar 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna nýtingarhlutfalls í landi Ásgarðs

Skipulagsstofnun staðfesti 27. febrúar 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 20. nóvember 2024.

Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall fer úr 0,05 í 0,1 fyrir verslun og þjónustu (VÞ7) í landi Ásgarðs í Grímsborg. Um er að ræða leiðréttingu á gildandi aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.