Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. desember 2025

Persónuvernd hefur notkun stafræns pósthólfs 1. janúar 2026

Frá og með 1. janúar 2026 birtast bréf frá Persónuvernd í stafrænu pósthólfi viðtakenda á Ísland.is. Þetta gildir um alla einstaklinga og lögaðila sem eru með útgefna kennitölu. Breytingin er liður í innleiðingu laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, nr. 105/2021. Markmiðið með breytingunni er að bæta þjónustu og auka öryggi við sendingu gagna.

Persónuvernd mun birta öll útsend skjöl í eftirfarandi málum í stafrænu pósthólfi frá og með 1. janúar 2026:

  • Álitsbeiðnir

  • Endurupptökubeiðnir

  • Eftirfylgnimál

  • Frumathuganir

  • Frumkvæðisathuganir

  • Fyrirframsamráð

  • Gagna- og upplýsingabeiðnir

  • Kvartanir

  • Leiðbeiningar til ábyrgðar- og vinnsluaðila

  • Leyfi

  • Öryggisbrestir

  • Úttektir

Ef aðili máls hefur skráðan umboðsmann munu bréf málsaðila birtast í stafrænu pósthólfi umboðsmanns.

Embætti og stofnanir ríkis og sveitarfélaga munu einnig fá erindi send í gegnum stafrænt pósthólf.

Hnipp og tilkynningar um ný bréf.

Á Mínum síðum á Ísland.is er hægt að skrá netfang og fá hnipp þegar bréf er birt í pósthólfinu.

Á Mínum síðum er einnig hægt að óska eftir að fá öll bréf send á pappírsformi á lögheimili samhliða birtingu í stafrænu pósthólfi. Hægt er að óska eftir sömu þjónustu með því að mæta á skrifstofu sýslumanna og framvísa skilríkjum.

Réttaráhrif bréfa sem send eru í pósti miðast samt sem áður við tíma birtingar í stafrænu pósthólfi.

Samskipti sem birtast með öðrum hætti en í stafrænu pósthólfi.

Sem stendur munu samskipti vegna eftirfarandi mála ekki vera birt í stafrænu pósthólfi:

  • Ábendingar

  • Beiðnir um fund

  • Fyrirspurnir

  • Umsagnarbeiðnir um lög og reglur

  • Vísindarannsóknir

Ítrekað er að framangreindar breytingar taka gildi 1. janúar 2026.