Fara beint í efnið

9. nóvember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Málsmeðferðarreglur Persónuverndar

Þann 8. nóvember sl. voru nýjar reglur um málsmeðferð Persónuverndar birtar í Stjórnartíðindum og öðluðust þær þegar gildi.

Reglurnar geyma meðal annars almenn ákvæði um málsmeðferð við upphaf mála og rannsókn þeirra, auk sérreglna um málsmeðferð kvartana, frumkvæðisathugana og úttekta, afgreiðslu öryggisbresta og beiðna um fyrirframsamráð, svo og beitingu valdheimilda Persónuverndar.

Reglurnar má nálgast á vef Stjórnartíðinda en einnig á vef Persónuverndar.