Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. desember 2025

Landspítali og Háskóli Íslands halda sameiginlega vísindaráðstefnu 2026

Landspítali og heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands hafa ákveðið að halda sameiginlega vísindaráðstefnu í apríl 2026.

Stofnanirnar hafa hingað til haldið hvor sína ráðstefnuna árlega en með því að taka höndum saman er stefnan sett á að efla vísindastarf enn frekar. Sameiginlega ráðstefnan verður haldin undir heitinu Vísindi á vordögum.

„Í ljósi smæðar samfélagsins þá þykir okkur skynsamlegt að leggja saman okkar krafta varðandi til að mynda innviði og reyna með þeim hætti að skapa sameiginlegt vísindasamfélag á sviði heilbrigðisvísinda,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala.

Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor og forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, segir vísindarannsóknir hluta af grunnstarfsemi háskólans auk þess sem þær séu undirstaða þess gæðastarfs sem unnið er á sjúkrahúsum og í háskólanum. Á ráðstefnunni séu bæði ungir vísindamann að kynna sínar fyrstu rannsóknir og einnig þekktir, reynslumiklir rannsakendur að kynna sínar niðurstöður. „Þetta er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag, bæði vísindasamfélagið en ekki síður samfélagið í heild.“

Runólfur tekur undir þetta og segir að þótt þarna gefist ungu vísindafólki gott tækifæri til að kynna rannsóknir sínar sé tilgangurinn ekki síður að ná vísindafólkinu saman. „Við ætlum að reyna að gera allt sem við getum til að draga fólk að og halda merki vísindanna á lofti.“ Unnur segir miklar framfarir eiga sér stað í heilbrigðisvísindum um þessar mundir. „Við þurfum að hittast, helst árlega, til þess að nálgast hlutina frá ólíkum hliðum.“