Fara beint í efnið

8. október 2024

Ísland heldur 5. sætinu í könnun Sameinuðu þjóðanna

Ísland heldur fimmta sætinu í könnun aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna á stafrænni opinberri þjónustu og innviðum.

egdi 2024

Ísland heldur fimmta sætinu í könnun aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna á stafrænni opinberri þjónustu og innviðum. Stigagjöf Íslands hefur þó hækkað frá síðustu könnun sem er framkvæmd annað hvert ár.

Staða Íslands í E-Government Development Index (EGDI):

EGDI

2024

2022

2020

2018

2016

Sæti

5

5

12

19

27

Stig

0,967

0,941

0,910

0,831

0,766

Þau fjögur lönd sem skora hæst á undan Íslandi í samanburðinum eru Danmörk, Eistland, Singapúr og Suður-Kórea.

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra:

Fjárfesting íslenskra stjórnvalda í stafrænni þjónustu, ekki síst fyrir tilstilli verkefnastofunnar um Stafrænt Ísland og Ísland.is, ber sýnilegan árangur. Alþjóðlega samanburðarkönnunin UN E-Government Survey er skýrt merki um það.

Í könnun Sameinuðu þjóðanna er er skoðað hversu vel ríkin standa að stafrænni þjónustu og er horft til þriggja þátta:

  • Stafræn þjónusta

  • Fjarskiptainnviðir

  • Mannauður og hæfni

Könnuninni er ætlað að gera kleift að bera saman hvernig þjóðir standa að notendavænni stafrænni þjónustu, stafrænum innviðum og hæfni og hversu vel ríkin nýta upplýsingatækni til að gera þjónustu aðgengilega fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Könnunina má því nota til þess að draga lærdóm af því sem vel er gert og hafa þannig áhrif á stefnumótun í stafrænni þjónustu.

Neðangreind tafla lýsir þeim þáttum sem mældir eru í E-Government Development Index (EGDI)

Þættir

Undirþættir

Stafræn þjónusta

Stofnanaskipulag

Þjónustuveiting

Framsetning stafræns efnis

Tækni

Stafræn þátttaka

Fjarskiptainnviðir

Internet notendur

Farsímaáskriftir

Áskrifendur háhraðatenginga

Fjárhagslegur viðráðanleiki hágraðatenginga

Mannauður og hæfni

Lestrargeta fullorðinna

Innritunarhlutfall

Vænt ár af skólagöngu

Fjöldi ára af skólagöngu

Stafræn lestrarhæfni

Niðurstöður annarrar könnunar í Evrópu, EU eGov Benchmark, gefa sömu vísbendingar, en þar situr Ísland í 4. sæti skv. síðustu niðurstöðu.

Lesa nánar um könnun Sameinuðuþjóðanna United Nations E-Government Development Index 2024

Lesa nánar um könnun Evrópusambandsins EU eGov Benchmark 2023