Fara beint í efnið

4. febrúar 2026

Framtíðar tækifæri og áskoranir í persónuvernd rædd á málþingi Persónuverndar

Í tilefni 25 ára starfsafmæli Persónuverndar og alþjóðlega persónuverndardagsins var haldið málþing þann 28. september síðastliðinn. Yfirskrift málþingsins var „Persónuvernd – hvert stefnum við?“

Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, flutti opnunarávarp og ræddi framtíð persónuverndar og áskoranir sem hafa hafa komið á borð stofnunarinnar.

Flutt voru þrjú erindi á málþinginu og lauk því með pallborði.

Erindi voru flutt af Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, Björgu Thorarensen, hæstaréttardómara og fyrrverandi formanns stjórnar Persónuverndar, og Þórarinni Einarssyni, aðalhönnunar eftirlislausna hjá SAS Institute.

Í pallborði sátu, Dóra Sif Tynes, formaður stjórnar Persónuverndar, Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki og deildarforseti Félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri, og Sindri M. Stephensen, settur héraðsdómari og dósent við Lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Pallborðinu stjórnaði Vigdís Eva Líndal, leiðtogi upplýsingaöryggis hjá Orkuveitunni.

Hér má horfa á upptöku af málþinginu. Upptaka verður aðgengileg til 4. mars 2026