Fara beint í efnið

20. júlí 2022

Endursmitum af völdum Covid-19 fjölgar

Helsti óvissuþátturinn í dag um Covid-19 faraldurinn snýr að því hversu vel og lengi ónæmi varir eftir sýkingu og/eða bólusetningu.

Landlæknir logo

Helsti óvissuþátturinn í dag um Covid-19 faraldurinn snýr að því hversu vel og lengi ónæmi varir eftir sýkingu og/eða bólusetningu.

Í skýrslu Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) frá 18. júlí 2022 kemur fram að þriðji skammtur bólusetningar (fyrsti örvunarskammtur) kemur að talsverðu leyti í veg fyrir smit af völdum Covid-19 en verndin er betri gegn alvarlegum veikindum. Verndin dvín hins vegar á fyrstu þremur mánuðum eftir bólusetninguna og er misgóð eftir afbrigðum veirunnar en verndin er minni gegn ómícron afbrigðinu en öðrum afbrigðum. Fjórði bólusetningarskammtur bætir hins vegar verndina til muna en ekki er komin nægileg reynsla enn sem komið er til að segja hversu lengi hún varir.

Sóttvarnalæknir fylgist einnig með hversu vel og lengi vernd eftir fyrstu sýkingu af völdum Covid-19 varir. Á Íslandi hafa 200.397 Covid-19 smit greinst opinberlega frá upphafi faraldursins og þar af hafa 5.116 greinst tvívegis og 19 þrisvar. Endursmit eru því í heild 2.6% af öllum smitum en reikna má með að hlutfallið sé hærra þvi ekki fara allir sem greinast með endursmit t.d. á heimaprófum í opinber próf.

Þegar endursmitin eru skoðuð nánar þá kemur í ljós að af þeim 30.487 sem greindust í fyrsta sinn á árunum 2020 og 2021 þá endursýktust 4.026 á árinu 2022 eftir að ómícron bylgjan hófst eða 13,2%. Af þeim 169.069 sem smituðst í fyrsta sinn á árinu 2022 þá hefur 841 endursýkst (0,5%). Rétt er að hafa í huga að alþjóðleg skilgreining á endursmiti er nýtt smit sem greinist 60 dögum eða síðar eftir fyrra smit.  

Þannig er ljóst að hættan á endursmiti er háð tíma frá fyrra smiti sem endurspeglar dvínandi vernd með tímanum. Einnig virðast ný afbrigði veirunnar eiga auðveldara með að komast undan ónæmi af völdum fyrri afbrigða. Endursmitum hefur fjölgað verulega síðustu tvo mánuði og hafa síðustu vikurnar verið um 20% af daglegum fjölda smita. Fjölgunin tengist aukningu á BA.5 afbrigði kórónaveirunnar en þetta afbrigði veldur nú um 80% allra smita hér á landi. Erlendar rannsóknir hafa jafnframt sýnt að BA.5 afbrigðið sleppur meira en önnur afbrigði undan ónæmi af völdum fyrri smita.

Næstu vikur og mánuðir munu skera úr um hversu algeng endursmit af völdum nýrra afbrigða kórónaveirunnar verða. Sú vitneskja mun vega þungt í ákvarðanatökum um endurbólusetningar næsta haust/vetur.

Sóttvarnalæknir