Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. febrúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Barátta gegn umferðarslysum

Nýtt Umferðarráð hefur verið skipað af samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller. Umferðarráð kom saman til síns fyrsta fundar á fimmtudag og sendi frá sér í kjölfarið eftirfarandi ályktun:

Nú þegar hafa þrír einstaklingar látist það sem af er þessu ári í umferðarslysum. Það er óásættanlegt. Þrátt fyrir að fjöldi látinna í umferð hafi verið með lægsta móti á síðasta ári er full ástæða til að halda vöku sinni og slá hvergi af í baráttunni gegn umferðarslysum. Markmið okkar er að enginn látist í umferðarslysum og alvarlegum slysum í umferð fækki til muna. Bent er á í þessu sambandi að ekkert banaslys varð á sjó á síðasta ári hér við land, sem er afrakstur áralangrar baráttu fyrir öryggi sjómanna. Sama þróun hefur átt sér stað í flugi, en enginn hefur látið lífið í íslenskt skráðu loftfari á síðastliðnum átta árum. Það gefur okkur von um að slíkum árangri sé hægt að ná í umferðinni. Umferðarráð hvetur eindregið til þess að landsmenn allir og stjórnvöld stuðli að því að slík framtíðarsýn sé möguleg.