Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. apríl 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys í Langadal.

Laust fyrir klukkan 07:00 í morgun var lögreglunni á Egilsstöðum tilkynnt um alvarlegt umferðarslys í Langadal skammt vestan við veginn til Vopnafjarðar. Um er að ræða fólksbifreið með tveim karlmönnum í. Um kl. 08:00 var annar mannanna úrskurðaður látinn en hinn var minna slasaður. Búið er að hafa samband við aðstandendur. Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar á Eskifirði í samvinnu við lögregluna á Egilsstöðum.

Frekari upplýsingar verða ekki gefnar að svo stöddu.