14. nóvember 2018
14. nóvember 2018
Vitundarvakning um sýklalyfjanotkun
Þann 12. nóvember 2018 hófst fjórða vitundarvika Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um skynsamlega notkun sýklalyfja.
Þann 12. nóvember 2018 hófst fjórða vitundarvika Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um skynsamlega notkun sýklalyfja. Auk þess er dagurinn í dag, 15. nóvember, sérstaklega helgaður vitundarvakningu í Evrópu af Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC). Tilgangur þessarar vitundarvakningar er að minna einstaklinga, stjórnvöld og heilbrigðisstarfsmenn á mikilvægi þess að nota sýklalyf skynsamlega og minna á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Í ár er lögð áhersla á þá heilbrigðisógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería og mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða sem m.a. felast í skynsamlegri notkun sýklalyfja og ýmsum sóttvarnaaðgerðum.
Á Íslandi er vel fylgst með notkun sýklalyfja hjá mönnum og dýrum, og einnig með þróun sýklalyfjaónæmis. Hér á landi er sýklalyfjanotkun hjá mönnum mest miðað við hin Norðurlöndin en um miðbik ef miðað er við öll Evrópulönd. Hins vegar er sýklalyfjanotkun hjá dýrum hér á landi áfram ein sú minnsta í Evrópu.
ECDC hefur bent á að árlega látast um 33.000 einstaklingar á Evrópska efnahagssvæðinu en sjúkdómsbyrði sýklalyfjaónæmis er langminnst hér á landi miðað við önnur Evrópulönd. Mikilvægt er að viðhalda þeirri stöðu en til þess að svo megi verða þurfa margir aðilar hér á landi að taka höndum saman m.a. með því að stuðla að bættri sýklalyfjanotkun hjá mönnum, halda sýklalyfjanotkun áfram í lágmarki hjá dýrum og efla eftirlit með bakteríum í ferskum matvörum. Starfshópur heilbrigðisráðherra skilaði fyrr á þessu ári tillögum um aðgerðir sem miða að því að hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Íslandi.
Lesa nánar:
Sóttvarnalæknir