Fara beint í efnið

25. júní 2018

Heyrnarfræðingar löggiltir sem heilbrigðisstétt

Réttur til að kalla sig heyrnarfræðing og starfa sem slíkur hér á landi, er skilgreindur í nýrri reglugerð nr. 630/2018 sem sett var nýverið af Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Réttur til að kalla sig heyrnarfræðing og starfa sem slíkur hér á landi, er skilgreindur í nýrri reglugerð nr. 630/2018 sem sett var nýverið af Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Reglugerðin kveður á um menntun, réttindi og skyldur heyrnarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

Starf heyrnarfræðinga felst í að sjá um heyrnarmælingar, fræðslu og endurhæfingu heyrnarskertra. Í reglugerðinni felst löggilding stéttarinnar og hefur sá einn rétt til að kalla sig heyrnarfræðing og starfa sem slíkur hér á landi sem hefur fengið til þess leyfi landlæknis. Reglugerðin er sett með stoð í lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012.

Ákvörðun ráðherra um að löggildingu heyrnarfræðinga er í samræmi við tillögu starfshóps sem þáverandi heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2017 til að fara yfir þjónustu við einstaklinga með heyrnarskerðingu og talmein með það að markmiði að hún verði sem best. Í umfjöllun starfshópsins kemur m.a. fram að mikilvægt er að við greiningu á heyrnarskerðingu sé unnið samkvæmt viðurkenndri þekkingu, fræðum og fagmennsku. Því var það mat hópsins að brýnt væri að gera heyrnarfræðinga að löggiltri heilbrigðisstétt til að tryggja gæði þjónustunnar sem þeir veita.

Í samanburði við nágrannalöndin er skortur á heyrnarfræðingum hér á landi. Taldar eru líkur til þess að löggilding muni fjölga nemendum í heyrnarfræði og að íslenskar menntastofnanir taki upp menntunarbraut í heyrnarfræði.

Sjá einnig

Starfsleyfi heyrnarfræðinga.

Tillaga að framtíðarskipulagi þjónustu við fólk með heyrnarskerðingu og talmein