Fara beint í efnið

26. mars 2019

Ekki verið greind fleiri mislingatilfelli hér á landi á undanförnum dögum

Liðnar eru 3 vikur frá síðasta hugsanlega smiti og telur sóttvarnalæknir að líklegast hafi tekist að stöðva faraldurinn að þessu sinni.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Liðnar eru 3 vikur frá síðasta hugsanlega smiti og telur sóttvarnalæknir að líklegast hafi tekist að stöðva faraldurinn að þessu sinni. Fjórir einstaklingar hafa greinst með staðfesta mislinga og þrír aðrir með svokallað væga mislinga („modified measles“), en það eru bólusettir einstaklingar sem hafa komist í tæri við smitaðan einstakling. Þessir einstaklingar fá vanalega væg einkenni og smita ekki aðra. Einnig hafa nokkrir einstaklingar greinst með væg mislingalík einkenni í kjölfar bólusetninga en slík einkenni eru ekki alvarleg og þessir einstaklingar smita ekki aðra.

Þær aðgerðir sem ráðist var í til að stöðva útbreiðslu mislinga hér á landi tókust mjög vel þökk sé starfsmönnum heilbrigðisstofnana og almenningi. Frá því að fyrsta tilfellið greindist hér á landi um miðjan febrúar hafa um það bil 6.749 einstaklingar verið bólusettir, 3.415 eru á aldrinum 0-17 ára, þar af 2.718 börn undir 18 mánaða aldri, og 2.572 á aldrinum 18-49 ára.

Á þessum tímamótum er samstaða á meðal sóttvarnalæknis og umdæmis- og svæðislækna sóttvarna um land allt að hverfa frá núverandi fyrirkomulagi á bólusetningum og fara að bólusetja aftur samkvæmt fyrri áætlun, við 18 mánaða og 12 ára aldur. Ekki er talin ástæða nú til að bólusetja börn yngri en 18 mánaða nema við sérstök tilefni, eins og þegar ferðast skal til landa þar sem tíðni mislinga er há. Óbólusettir einstaklingar á aldrinum 18 mánaða til 49 ára eru áfram hvattir til að láta bólusetja sig.

Sóttvarnalæknir