Fara beint í efnið

23. mars 2018

Andlát vegna ofskömmtunar lyfja á Íslandi og í Bandaríkjunum

Nokkur umræða hefur verið um andlát vegna ofskömmtunar lyfja á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hefur umræðan að mestu tengst ópíóíðum. Í Bandaríkjunum hefur ástandinu verið líkt við faraldur vegna fjölda þeirra sem deyja vegna ópíóíða og fjölda þeirra sem eiga við alvarlegan fíknivanda að stríða.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Samkvæmt tölum frá CDC (Centers for disease control and prevention) voru skráð 52404 andlát vegna ofskömmtunar árið 2015 í Bandaríkjum. Miðað við skilgreiningu* voru 22 lyfjatengd andlát á Íslandi árið 2015 sem þýðir að miðað við höfðatölu deyja tæplega helmingi færri á Íslandi vegna lyfjatengdrar ofskömmtunar miðað við Bandaríkin. Fjöldi andláta í Bandaríkjunum hefur aukist um 170% frá því árið 1999 til ársins 2015 sem er uggvænleg þróun sem ekki sér fyrir endann á. Fjöldi lyfjatengdra andláta hefur mest farið í 10 á hverja 100.000 íbúa árin 2007 og 2008 á Íslandi en talsverðar sveiflur hafa átt sér stað milli ára.

Ópíóíða faraldurinn sem geysar í Bandaríkjunum tengist bæði lyfjum og ólöglegum efnum eins og heróíns. Árið 2015 var algengið 7 andlát á hverja 100.000 íbúa vegna ópíóíða lyfja en vegna heróíns 4. Athygli vekur að þegar dregur úr fjölda andláta vegna lyfja árið 2012 þá fjölgar andlátum vegna heróíns. Árið 2014 fjölgar andlátum vegna ópíóíða lyfja aftur og eru þau ráðandi orsök andláta vegna ofskömmtunar í Bandaríkjunum en heróín tengd andlát sækja á.

Samanburður milli Íslands og Bandaríkjanna á algengi andláta sem orsakast eingöngu af eitrunum af völdum ópíóíða lyfja hér á landi og ópíóíða lyfja í Bandaríkjunum bendir til að umfang vandans hér á landi sé ekki eins mikið en þó talsvert. Allur samanburður er samt erfiður þar sem ekki er víst að skráning upplýsinga sé með sama hætti.

Á Íslandi er það einkennandi hjá þeim einstaklingum sem deyja vegna lyfjaeitrana að í flestum tilfellum finnast fleiri en eitt efni í þeim látnu. Í þeim andlátum sem lyfjateymi embættisins hefur haft til skoðunar er gróflega hægt að skipta einstaklingum í tvo hópa eftir aldri. Það er annars vegar fólk á aldrinum 20 til 40 ára sem hafa tekið ópíóíða eða örvandi lyf í bland við ólögleg efni (t.d. kannabis og MDMA), hinn hópurinn sem er 40 til 80 ára sem hefur tekið inn þunglyndislyf, róandi lyf eða svefnlyf og oft með áfengi. Meðalaldur þeirra sem létust árið 2017 og voru til skoðunar hjá lyfjateymi embættisins var 48,6 ár.

Helmingur lyfjatengdra andláta ársins 2017 varð á síðasta ársfjórðungi samkvæmt bráðabirgðatölum úr dánarmeinaskrá. Það sem af er janúar 2018 eru 8 andlát til skoðunar hjá lyfjateymi embættisins sem bendir til að vandinn hér á landi er ekki að minnka.

Ávísanir tauga- og geðlyfja hafa aukist um 130% frá 1995 til 2015 á Íslandi, á meðan aukning er á bilinu 42-76 % hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Árið 2015 var notkun tauga- og geðlyfja 30% meiri hér á landi en hjá næstu Norðurlandaþjóð sem er Svíþjóð. Margt bendir til að margir eigi við vanda að stríða vegna misnotkunar á lyfjum sem þeir fá ávísað sjálfir en einnig einstaklingar sem fá lyfin eftir öðrum leiðum.

Eitt af því sem talið er vera megin ástæða umfangs vandans í Bandaríkjunum er hefð fyrir miklu magni ávísaðra lyfja sem hefur hjá mörgum verið gátt yfir í meiri fíknivanda. Það sama gildir fyrir Ísland, að draga verður úr ávísunum tauga- og geðlyfja til að sporna við vandanum og margir læknar sem ávísa lyfjum eins og fentanyl, morfíni, metylfenidati, tramadóli, Parkódín forte og oxýkódoni þurfa að endurskoða sínar ávísanavenjur. Embætti landlæknis gaf nýlega út leiðbeiningar um góða starfshætti lækna við ávísun lyfja sem taka mið af nýjum áherslum í ávísunum ávanabindandi lyfja.

Magnús Jóhannsson, læknir
Jón Pétur Einarsson, lyfjafræðingur
Jón Óskar Guðlaugsson, verkefnisstjóri
Ólafur B. Einarsson,
sérfræðingur

Heimildir: National Center on Health Statistics, dánarmeinaskrá, Hagstofa, mannfjöldatölur, Nomesco

Skilgreiningar:* Eitranir vegna lyfja, ICD-10 kóðar: T36-T39, T40.2-T40.4, T41-T43.5, og T43.8-T50.8** Ópíóíða lyf að meðtöldum t.d. metadón og öðrum framleiddum efnum ICD-10 kóðar(T40.2 og T40.4)*** Heróín ICD-10 kóði (T40.1)