Flugvernd er sambland af ráðstöfunum, mannlegum og náttúrulegum úrræðum til að vernda almenningsflug gegn ólöglegum aðgerðum. Markmið flugverndar í almenningsflugi er að stuðla að auknu öryggi farþega, áhafna, starfsfólks flugvalla og almennings með viðeigandi flugverndarráðstöfunum.
Stefna og markmið flugverndar
Helstu verkefni starfsmanna Samgöngustofu vegna flugverndar eru:
Uppfærsla reglugerða og ákvarðana um flugvernd.
Gefa út og viðhalda flugverndaráætlun Íslands.
Samþykkja flugverndaráætlanir aðila sem sjá um framkvæmd flugverndar.
Gefa út þjálfunaráætlun Íslands vegna flugverndar.
Erlend samskipti vegna flugverndarmála, m.a. við flugmálayfirvöld annarra ríkja, erlenda flugrekendur, Alþjóða flugmálastofnunina - ICAO, Samtök Evrópskra flugmálayfirvalda - ECAC, Evrópusambandið, Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins – EASA og eftirlitsstofnun EFTA - ESA
Svara fyrir eftirlit erlendra stofnana á sviði flugverndar, þ. á m. á vegum eftirlitsstofnunar EFTA - ESA og Alþjóða flugmálastofnunarinnar – ICAO.
Almenn leiðbeiningaskylda vegna flugverndar og flugverndarráðstafana.
Eftirtaldir aðilar sem sinna millilandaflugi eru skyldugir til að sækja um samþykki vegna flugverndar til Samgöngustofu:
Rekstraraðilar flugvalla sem sinna millilandaflugi
Flugrekendur sem sinna millilandaflugi
Viðurkenndir umboðsaðilar
Þekktir sendendur
Birgjar
Flugafgreiðsluaðilar
Eftirlitsskyldir aðilar eru einnig þjónustuaðilar sem sinna framkvæmd flugverndarráðstafana í millilandaflugi , t.d. í verktöku.
Til að tryggja að kröfur flugverndar séu innleiddar og framkvæmdar í samræmi við kröfur, fer Samgöngustofa með stjórnsýslu og eftirlit með flugvernd og aðilum sem sjá um framkvæmd flugverndarráðstafanna.
Samgöngustofa veitir nánari upplýsingar um eftirlitsskylda aðila og veitir auk þess starfsleyfi og samþykki vegna flugverndar.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa