Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni sem ætlað er að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi. Árleg viðurkenningarhátíð verkefnisins var haldin 9. október og þar voru veittar viðurkenningar 128 þátttakendum sem hafa náð markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn.