Máli stefnanda, sem krafðist bóta úr hendi stefnda vegna seinkunar á flugi, var vísað frá dómi þar sem varnarþingsreglur íslensks réttar gátu ekki staðið til málshöfðunar hér á landi.
Ákærði dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot. Þá var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku á fjaðrahníf.
Ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, til greiðslu á 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og gert að sæta upptöku á þar til greindum munum.