Almennt um lofthæfimál
Eftirlit með lofthæfimálum felst aðallega í úttektum og vottun viðhaldsstöðva loftfara og viðhaldsstjórnun flugrekenda og einkaaðila. Samgöngustofa sér í þessu samhengi um loftfaraskrá sem er lögformlega skráning á eignarhaldi loftfara í eigu íslenskra aðila.
Helstu verkefni varðandi lofthæfimál.
Leyfisveitingar og eftirlit með fyrirtækjum sem framkvæma viðhald(Part 145), sem og fyrirtækjum sem stjórna viðhaldi loftfara(CAMO).
Tæknilegar úttektir á loftförum.
Mat á lofthæfi þ.e. útgáfa og endurnýjun lofthæfivottorða sem staðfestir að loftfar sé lofthæft að uppfylltum ákveðnum kröfum.
Mat á menntun, þjálfun og prófum flugvéltækna.
Þátttaka í starfi EASA við samræmingu og innleiðingu reglna ásamt ýmsum samskiptum við stofnunina um lofthæfimál og starfsemi leyfishafa.
Netföng lofthæfi og skráningardeildar
Afskráning loftfara | |
Lofthæfistaðfestingarvottorð (ARC) | |
Hljóðstigsvottorð |
Lög og reglur
Reglugerðir Evrópusambandsins
nr. 216/2008
nr. 748/2012
nr. 1321/2014
Þjónustuaðili
Samgöngustofa