Fyrir Grindavík: Húsnæði
Get ég fengið ráðgjöf varðandi fjármál og húsnæðislán?
Umboðsmaður skuldara (UMS) veitir einstaklingum ókeypis ráðgjöf vegna fjárhagsvanda.
Hjá Umboðsmanni er ráðgjafi á vakt alla virka daga milli klukkan 10 og 15.
Hægt er að hringja í síma 512 6600 eða koma við í Hlíðasmára 11 og fá samtal við ráðgjafa, ekki þarf að panta tíma.
Einnig er hægt að panta símtal frá ráðgjafa á vefsíðunni www.ums.is. Á vefsíðunni er einnig að finna mikinn fróðleik og upplýsingar um þá þjónustu sem UMS veitir einstaklingum.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?