Fiskistofa: Nýtt veiðivottorðakerfi
Afhverju er gerður greinamunur á gámum og vögnum (trailer) í veiðivottorðinu?
Það snýr að rekjanleika og eru upplýsingarnar notaðar til þess að halda utan um IUU eftirlit. Þar sem flutningur getur ýmist verið með gámum eða trailerum/flutningsvögnum þá er nauðsynlegt að greina á milli með því að skrá annaðhvort númer gáms eða trailers/flugningsvagns.
Gámanúmer eru á stöðluðu formi og alþjóðlega viðurkennd og teljast því rekjanleg flutningseining sem er nauðsynlegt fyrir IUU‑eftirlit. Númer á vagni/trailer er aftur á móti ekki eftir alþjóðlegu stöðluðu formi enda mismunandi á milli landa. Þau eru oft skráningarnúmer eða trailernúmer flutningsfyrirtækis og geta endurnýst eða breyst. Og þar sem þau eru ekki á stöðluðu formi þá eru þau ekki talin eins örugg þegar kemur að rekjanleika og því skráð sem viðbótarupplýsingar við aðrar farmupplýsingar en engu að síður þarfar.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?