Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Tímalína kjörstjórna
Almenn tímalína fyrir yfirkjörstjórnir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026.
Athugið að tímalínur geta verið uppfærðar.
22. júlí - Viðmiðunardagur kjörskrár. Kjörskrá er samskonar og við alþingiskosningar og forsetakjör.
24. júlí - Kjörskrá er birt.
27. júlí - Landskjörstjórn auglýsir kjördag.
27. júlí - Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst.
29. ágúst - Kjördagur.
Tímalína fyrir yfirkjörstjórnir sveitarfélaga vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026.
Eigi síðar en 8. ágúst
Skal kjörskrá vera aðgengileg á skrifstofu sveitarstjórnar eða öðrum hentugum stað.
Sveitarstjórn ákveður kjörstað.
Yfirkjörstjórn skal auglýsa kjörstað og opnunartíma með nægum fyrirvara og á þann hátt á hverjum stað sem venja er þar að birta opinberar auglýsingar. Jafnframt skal hún auglýsa aðsetur sitt þar sem hún dvelst meðan kosning fer fram.
Tímalína fyrir yfirkjörstjórnir kjördæma vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026.
Með nægum fyrirvara:
Yfirkjörstjórn skal með nægum fyrirvara auglýsa aðsetur sitt þar sem hún dvelst meðan kosning fer fram.
Yfirkjörstjórn auglýsir með nægum fyrirvara hvar og hvenær talning atkvæða fer fram.
Að lokinni talningu:
Að lokinni talningu atkvæða sendir yfirkjörstjórn kjördæmis landskjörstjórn skýrslu um niðurstöðu talningarinnar ásamt þeim kjörseðlum sem ágreiningur hefur verið um innan yfirkjörstjórnar eða milli hennar og umboðsmanna.