Landssamráðsfundur gegn ofbeldi 2026
Landssamráðsfundur gegn ofbeldi - 4. mars 2026 | Hilton Reykjavík Nordica
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri bjóða til landssamráðsfundar um aðgerðir til að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi á Íslandi.
Hverjum er fundurinn ætlaður? Fundurinn er opinn öllum en sérstaklega ætlaður fulltrúum ríkis, sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, rannsóknastofnana og öðrum sem láta sig þessi mál varða.
Skráðu þig hér: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi á Íslandi á Hilton þann 4. mars 2026
Markmið fundarins:
Bera saman reynslu og lærdóm
Kynna nýjungar og rannsóknir
Leggja fram tillögur að úrbótum
Dagskrá:
8:30 Hús opnar
9:00 Setning fundar
9:15–12:00 Fyrirlestrar og umræður
13:00–15:00 Vinnustofur
15:15 Lokaorð og næstu skref
Endanleg dagskrá verður birt síðar.
Fundinum verður einnig streymt.
Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, helena.sturludottir@logreglan.is.
