Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Árbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

13.05.2026

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Árbæ

Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun ?

Heilsugæslan Árbæ leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf. Um er að ræða 50 - 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.

Á heilsugæslustöðinni starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Heilsugæslan Árbæ býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu

  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum

  • Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum

  • Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga

  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.

Hæfniskröfur

  • Leyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi, skilyrði

  • Víðtæk starfsreynsla og/eða reynsla af sambærilegu starfi, skilyrði

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Sævarsdóttir

Forstöðumaður

Tölvupóstur: helga.saevarsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5200

Tinna Karen Árnadóttir

Fagstjóri lækninga

Tölvupóstur: tinna.karen.arnadottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5200

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Árbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

13.05.2026