
Þjónustuaðili
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Listrænn ráðgjafi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-75%
Starf skráð
28.04.2026
Umsóknarfrestur
22.05.2026
Listrænn ráðgjafi
Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) auglýsir laust til umsóknar starf listræns ráðgjafa í 50-75% starfshlutfall (umsemjanlegt). Við leitum að skapandi, skipulögðum og öflugum einstaklingi með breiða þekkingu og ástríðu fyrir tónlist og tónlistarlífi á Íslandi sem og erlendis.
Sótt er um starfið hér: Listrænn ráðgjafi - Sinfóníuhljómsveit Íslands - Hagvangur
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á mótun og framkvæmd listrænnar stefnu SÍ.
Vinnur tillögur að dagskrá hljómsveitarinnar með listrænum stjórnanda og framkvæmdateymi SÍ.
Listræn ráðgjöf við listrænan stjórnanda, gestalistamenn og framkvæmdateymi.
Formennska í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar.
Aðkoma að samningagerð við listafólk.
Yfirferð á raddskrám tónverka.
Ritun texta um verkefni hljómsveitarinnar.
Aðkoma að árlegri starfsáætlun og vinnuáætlun.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Yfirgripsmikil tónlistarþekking með áherslu á sígilda tónlist og samtímatónlist.
Yfirgripsmikil þekking á starfsemi sinfóníuhljómsveita, hljómsveitarstjórum og einleikurum/einsöngvurum á alþjóðlegum vettvangi.
Framúrskarandi samskiptahæfni og unun af teymisvinnu.
Sjálfstæði, drifkraftur og skipulagshæfni í starfi.
Þekking á starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í yfir 75 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr ólíkum greinum tónlistar. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsmannafjöldi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er rúmlega 100 manns. Nánari upplýsingar á sinfonia.is.
Nánari upplýsingar veitir Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi skulu fylltar út á hagvangur.is
Starfshlutfall er 50-75%
Umsóknarfrestur er til og með 22.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Listrænn ráðgjafi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-75%
Starf skráð
28.04.2026
Umsóknarfrestur
22.05.2026