Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir taugalækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

08.05.2026

Yfirlæknir taugalækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða yfirlækni í taugalækningum við lyflækningadeild. Um er að ræða 100% stöðu. Staðan er laus eftir samkomulagi.

Komdu í lið með okkur og finndu jafnvægið fyrir norðan!

Af hverju Sjúkrahúsið á Akureyri?

  • Góð starfsaðstaða og sterk fagleg samvinna

  • Tækifæri til kennslu og þróunar

  • Lífsgæði og samfélag

  • Náttúruperla með frábærum möguleikum til útivistar

  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

  • Sterk liðsheild

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirlæknir ber faglega ábyrgð á taugalækningum á SAk

  • Uppbygging teymisþjónustu fyrir sjúklinga með MS á Norður- og Austurlandi

  • Þróun dag- og göngudeildar taugasjúkdóma

  • Vinna á dag- og göngudeild

  • Þátttaka í læknisþjónustu öldrunar- og líknarteymis SAk á lyflækningadeild

  • Ráðgjöf í taugalækningum

  • Kennsla heilbrigðisstarfsmanna og nema

Hæfniskröfur

  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi og fullgild sérfræðiréttindi í taugalækningum

  • Þekking og reynsla af teymisvinnu með MS sjúklinga

  • Breið þekking og reynsla í taugasjúkdómum

  • Mjög gott vald á íslensku

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu og reynslu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðni Arnar Guðnason

forstöðulæknir

Tölvupóstur: gag0317@sak.is

Sími: 463-0100

Guðjón Kristjánsson

forstöðulæknir

Tölvupóstur: gudjon@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir taugalækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

08.05.2026