Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur - Fangelsismálastofnun
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Sálfræðingur - Fangelsismálastofnun
Við leitum að framsýnum og lausnamiðuðum sálfræðingi í faglegt teymi á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar.
Á meðferðarsviði starfa sálfræðingar, félagsráðgjafar og vímuefnaráðgjafar sem vinna í nánu samstarfi við annað starfsfólk stofnunarinnar og heilbrigðisstarfsfólk innan fangelsa. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kortlagning áhættuhegðunar og gerð meðferðaráætlana
Sértæk meðferðarvinna til að draga úr ofbeldishegðun/hegðunarvanda
Einstaklingsmeðferð og hópafræðsla fyrir skjólstæðinga
Fræðsla og leiðsögn til starfsfólks fangelsa
Meðferð, stuðningur og leiðsögn til skjólstæðinga á reynslulausn eða á öðrum stigum afplánunar
Samráð og samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuaðila
Þátttaka í umbótastarfi, þróunarverkefnum og þverfaglegu samstarfi
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sálfræðinga
Reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda
Þekking og reynsla á sviði réttarsálfræði er kostur
Reynsla af áhættumatsgerð, hugrænni atferlismeðferð, áhugahvetjandi samtalstækni (Motivational interviewing) og áfallamiðaðri nálgun æskileg
Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun er mikilvæg
Góð samstarfshæfni, jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Góð tölvufærni og þekking á One CRM skjalakerfinu er kostur
Góð íslensku og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn og er meðal annars boðið upp á fulla styttingu vinnuvikunnar og skemmtilegt starfsmannafélag í krefjandi en lifandi starfsumhverfi.
Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi, Fangelsin Hólmsheiði og Litla-Hraun sem eru lokuð fangelsi og Fangelsið Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi. Starfsfólk meðferðarsviðs er með starfsstöð á skrifstofu Fangelsismálastofnunar en starfið fer að miklu leyti fram í fangelsum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fangelsismálastofnunar við ráðningar. Fangelsismálastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt Jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur - Fangelsismálastofnun
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026