Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Matráður á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026

Matráður á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu matráðs á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Við leitum að góðum liðsfélaga sem hefur metnað til að bjóða upp á ferskan, hollan og fjölbreyttan mat. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matseld og bakstur fyrir skjólstæðinga og starfsfólk.

  • Umsjón og ábyrgð á þrifum og meðferð matvæla.

  • Ábyrgð á rekstri eldhúss og innkaupum.

  • Virk þátttaka í meðferðarvinnu og einstaklingsbundnum stuðningi í samvinnu við stjórnendur.

  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Hæfniskröfur

  • Þekking og reynsla af matseld og bakstri er skilyrði.

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.

  • Reynsla af umsjón og ábyrgð á rekstri eldhúss er æskileg.

  • Mjög góð samskiptahæfni, sveigjanleiki og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga eru nauðsynleg.

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.

  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.

  • Enskukunnátta æskileg.

  • Gild ökuréttindi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll sem hafa áhuga og hæfni til að sækja um, óháð kyni.

Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Dögg Þrastardóttir

forstöðumaður Lækjarbakka

Tölvupóstur: dogg.thrastardottir@bofs.is

Sími: 487-5163

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Matráður á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026