Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Fulltrúi í Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.04.2026

Umsóknarfrestur

07.05.2026

Sumarstarf - Fulltrúi í Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga

Sjúkratryggingar óska eftir að ráða kraftmikinn og sjálfstæðan aðila í sumarstarf við afleysingar í Hjálpartækjamiðstöð stofnunarinnar.

Sjúkratryggingar er lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi. Við tryggjum réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað starfsmanna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun, afgreiðsla og tiltekt pantaðra hjálpartækja

  • Móttaka og þrif á hjálpartækjum

  • Skráning á hjálpartækjum

  • Frágangur á lager

  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af samskiptum og þjónustu við einstaklinga kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Gott vald á íslenskri tungu

  • Góð enskukunnátta æskileg

  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og rík þjónustulund

  • Frumkvæði, áhugi og vönduð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi er kostur. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.

Sótt er um starfið á Starfatorgi ríkisins á www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Vala Steinunn Guðmundsdóttir

sérfræðingur

Tölvupóstur: vala.steinunn@sjukra.is

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Fulltrúi í Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.04.2026

Umsóknarfrestur

07.05.2026