Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Egils­stöðum

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari í dönsku við Menntaskólann á Egilsstöðum - Tímabundin ráðning

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

75%

Starf skráð

26.04.2026

Umsóknarfrestur

06.05.2026

Framhaldsskólakennari í dönsku við Menntaskólann á Egilsstöðum - Tímabundin ráðning

Menntaskólinn á Egilsstöðum auglýsir eftir dönskukennara í 75% starf frá 1.8.2026-31.7.2027. Um er að ræða afleysingu.

Við skólann er lögð áhersla á vönduð vinnubrögð í kennsluháttum, námsmati, leiðsagnarnámi og þverfaglegu samstarfi á grundvelli skólanámskrár. Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við nemendur jafnt staðnema og fjarnema. Skipulag skólaársins er með þeim hætti að önnum er skipt í tvær spannir. Skólinn notar kennslukerfið Canvas og námsumsjónarkerfið Innu. Skólinn er skóli án aðgreiningar.

Gildi skólans eru gleði, virðing og jafnrétti. Gildin endurspeglast í starfi skólans og skólabrag. Nýlega hlaut Menntaskólinn á Egilsstöðum nafnbótina Stofnun ársins eftir könnunina ¿Stofnun ársins¿, sem gefur til kynna góðan starfsanda, samheldinn hóp starfsmanna og gott vinnuumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennarar annast, taka þátt í og bera ábyrgð á eftirfarandi:

  • kennslu (stað og fjarkennsla), undirbúningi kennslu, námsmati og faglegu samstarfi í kennslugreinum sínum, skv. markmiðum skóla- og aðalnámskrár,

  • gerð kennsluáætlana og prófa í samstarfi við aðra kennara,

  • að viðhalda faglegri hæfni sinni og huga að tengslum við aðrar námsgreinar,

  • skráningu fjarvista nemenda sinna,

  • öðru samstarfi vegna starfs síns skv. markmiðum skóla og aðalnámskrár,

  • almennri upplýsingagjöf og upplýsingagjöf vegna sjálfsmats skóla og skóla­námskrár

  • sitja kennarafundi sem boðaðir eru skv. reglurgerð um kennarafundi.

  • önnur tilfallandi verkefni í samráði við skólameistara

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari og vera með sérhæfingu til að kenna bóknámsgreinar á 2.-4. hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, auk almennrar hæfni á viðkomandi fræðasviði sem krafist er við námslok á stigi 1.2 samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður eins og stendur í lögum nr. 95 frá 1. júli 2019.

Að auki þarf viðkomandi kennari að hafa

  • reynslu af dönskukennslu í framhaldsskóla er kostur

  • góða þekkingu og reynslu af notkun upplýsingatækni í starfi

  • sjálfstæð vinnubrögð

  • mjög góða samskiptahæfni

  • frjótt frumkvæði

  • vilja til þróunar í starfi og starfsháttum

  • góða þekkingu á kennslukerfinu Canvas og námsumsjónarkerfinu Innu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfesting á menntun), starfsréttindi sem kennari, fyrri störf og meðmælendur. Kynningabréf skal fylgja umsókn. Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakaskrá.

Umsóknarfrestur um ofangreinda stöðu rennur út miðvikudaginn 6. maí næstkomandi og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026 og stendur ráðning í 1 ár.

Starfshlutfall er 75%

Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Árni Ólason

Skólameistari

Tölvupóstur: arniola@me.is

Sími: 4712500

Elín Rán Björnsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: elin@me.is

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Egils­stöðum

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari í dönsku við Menntaskólann á Egilsstöðum - Tímabundin ráðning

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

75%

Starf skráð

26.04.2026

Umsóknarfrestur

06.05.2026