Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Lífeindafræðingur á sýkla- og veirufræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

06.05.2026

Lífeindafræðingur á sýkla- og veirufræðideild

Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstakling til starfa á sýkla- og veirufræðideild. Deildin heyrir undir rannsóknarþjónustu og fara þar fram greiningar, vísindarannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í faginu.

Á deildinni starfa yfir 90 manns í þverfaglegu teymi og veita fjölbreytta og umfangsmikla þjónustu allan sólarhringinn við greiningar sýkinga af völdum baktería, veira, sveppa og sníkjudýra, auk rannsókna, ráðgjafar og kennslu heilbrigðisstétta í sýkla- og veirufræði. Góður starfsandi er ríkjandi og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju fólki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum

  • Sérhæfð verkefni, eftir atvikum, sem heyra undir starfsemi deildarinnar

  • Virk þátttaka í gæðastarfi

  • Vinna við upplýsingakerfi deildarinnar

  • Stuðla að góðri þjónustu

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í lífeindafræði ásamt íslensku starfsleyfi

  • Reynsla af vinnu við bakteríuræktanir og greiningar er kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð

  • ákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma

  • Hæfni til að starfa í teymi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfamerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífeindafræðingur

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4,5

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Katrín Rún Jóhannsdóttir

Tölvupóstur: katrinrj@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Lífeindafræðingur á sýkla- og veirufræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

06.05.2026