Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í íslensku sem annað mál við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Kennari í íslensku sem annað mál við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ leitar eftir kennara á Íslenskubraut skólans frá og með 1. ágúst 2026 vegna stækkunar.

Um er að ræða námsbraut fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Nemendur hafa ólíkan bak­grunn hvað varðar nám, menn­ingu og tungumál. Námið á brautinni miðar að því að auka færni þeirra í íslensku, undirbúa þau fyrir frekara nám og þátttöku í samfélaginu.

Kennarar vinna samkvæmt stefnu og hugmyndafræði skólans um leiðsagnarnám þar sem notaðar eru fjölbreyttar og verkefnamiðaðar kennsluaðferðir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennarar á íslenskubraut þjálfa nem­endur í íslensku máli og menn­ing­ar­færni, ásamt því að stuðla að félags­legri vellíðan nem­andans.

Kennarar á íslenskubraut vinna mikið í teymi við undirbúning kennslu, gerð námsgagna og framkvæmd námsmats.

Kennarar vinna saman að áframhaldandi þróun brautarinnar sem hófst síðasta haust.

Hæfniskröfur

Háskólamenntun í íslensku eða erlendu tungumáli auk kennsluréttinda.

Reynsla eða hæfni til að starfa við verkefnamiðað leiðsagnarnám.

Góð tölvukunnátta er skilyrði og reynsla í notkun Office365, Innu eða Canvas er kostur.

Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Lipurð í mannlegum samskiptum.

Stundvísi og áreiðanleiki.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Frekari upplýsingar um skólann, íslenskubrautina og stefnur má finna á vef skólans.

Starfshlutfall er 75-100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Arnar Ingason

Skólameistari

Tölvupóstur: kristjan@fmos.is

Sími: 4128500

Þorbjörg Lilja Þórsdóttir

Deildarstjóri

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í íslensku sem annað mál við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026