
Þjónustuaðili
Menntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sögukennari í Menntaskólanum á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.04.2026
Umsóknarfrestur
12.05.2026
Sögukennari í Menntaskólanum á Akureyri
Menntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir sögukennara í afleysingu á haustönn 2026 í 100% starfshlutfall. MA er framsækinn skóli með langa sögu og býr nemendur undir nám í háskóla og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri þróun. Skólinn starfar undir kjörorðunum virðing - bjartsýni - seigla - árangur. Í MA er öflugt þróunarstarf og góður starfsandi. Ef þú vilt takast á við krefjandi kennarastarf í metnaðarfullum skóla er tækifærið hér.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og námsmat, faglegt samstarf, umsjón með nemendum og starfsþróun.
Hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi grein og leyfisbréf.
Leitað er að einstaklingum sem eru skapandi í starfi, færir í samskiptum, sýna frumkvæði og eru tilbúnir til að taka þátt í þróun kennslu og náms samkvæmt skólasýn MA. Kennslureynsla er æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr.92/2008 og þarf nýtt sakavottorð að fylgja umsókn.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám og fyrri störf og afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Ráðið er frá 1. ágúst 2026 - 31. desember 2026.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Menntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sögukennari í Menntaskólanum á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.04.2026
Umsóknarfrestur
12.05.2026