
Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Eftirlitsdýralæknir á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvesturumdæmi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.04.2026
Umsóknarfrestur
07.05.2026
Eftirlitsdýralæknir á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvesturumdæmi
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvesturumdæmi með aðsetur á Sauðárkróki. Um 100% starf er að ræða en mögulegt er að semja um lægra starfshlutfall.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsdýralæknir er framlínustarf innan stofnunarinnar sem stuðlar að velferð dýra um land allt. Starfið er krefjandi og útheimtir mikla faglega þekkingu, framúrskarandi samskiptahæfni og getu til að vinna eftir nákvæmum verklagsreglum í oft á tíðum erfiðum aðstæðum. Eftirlitsdýralæknar eru andlit stofnunarinnar á vettvangi og gegna lykilhlutverki í að framfylgja lögum og reglugerðum sem stuðla eiga að dýraheilbrigði, dýravelferð og öryggi matvæla.
Hæfniskröfur
Dýralæknamenntun og íslenskt starfsleyfi er skilyrði
Reynsla af umgengni við búfé og önnur dýr æskileg
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
Frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
Góð almennri tölvukunnáttu og geta til að tileinka sér færni í notkun starfstengdra kerfa sem stofnunin notar
Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf**. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað.** Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Eftirlitsdýralæknir á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvesturumdæmi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.04.2026
Umsóknarfrestur
07.05.2026