Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Kvenna­skólinn í Reykjavík

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í íslensku við Kvennaskólann í Reykjavík

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Kennari í íslensku við Kvennaskólann í Reykjavík

Kvennaskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða kennara í íslensku skólaárið 2026-2027 með möguleika á framlengingu. Ráðningartími er frá 1. ágúst 2026. Kvennaskólinn í Reykjavík er framhaldsskóli sem býður upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum, á starfsbraut og íslenskubraut. Nemendur eru um 680 og starfsfólk skólans um 70.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla í íslensku

Ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati

Faglegt samstarf

Hæfniskröfur

Starfsheitið kennari og hæfni á viðkomandi fræðasviði, sbr. lög nr. 95/2019

Faglegur metnaður og frumkvæði

Mjög góð samskiptahæfni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal skilað í gegnum Starfatorg, starfatorg.is, ásamt fylgigögnum þar sem fram koma upplýsingar um menntun, starfsreynslu og meðmælendur auk annarra upplýsinga sem umsækjendur telja að skipti máli. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans eru öll kyn hvött til að sækja um.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kolfinna Jóhannesdóttir

Skólameistari

Tölvupóstur: kolfinna@kvenno.is

Sími: 5807600

Þjónustuaðili

Kvenna­skólinn í Reykjavík

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í íslensku við Kvennaskólann í Reykjavík

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026