
Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Upplýsingar um starf
Starf
Kennsla íslensku sem annars máls og á framhaldsskólabraut við FAS
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
65-85%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Kennsla íslensku sem annars máls og á framhaldsskólabraut við FAS
Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er lögð áhersla á að þjóna þörfum nemenda á persónulegan hátt með sveigjanlegu námsframboði.
Skólinn er í samstarfi við aðra framhaldsskóla um fjarnám. Markmið er fyrst og fremst að bæta aðgengi nemenda að eins fjölbreyttu námsframboði og kostur er og tryggja þeim sem bestan undirbúning undir frekara nám eða störf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er eftir vel menntuðum kennara með þekkingu á kennslu íslensku sem annars máls, jafnt í staðnámi sem fjarnámi. Fjarnemar hafa aðgang að kennara á opnununartíma skólans. Einnig mun viðkomandi halda utan um nám nemenda á framhaldsskólabraut og kenna á brautinni.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019.
Háskólamenntun sem nýtist við kennslu í íslensku sem öðru máli sem og þekking og reynsla af nemendum með sérþarfir og skóla margbreytileikans. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða menntun á því sviði og/eða reynslu.
Umsækjandi þarf að hafa reynslu af kennslu í íslensku sem öðru máli, jafnt í fjar- og staðnámi.
Eiga sögu um góð og jákvæð samskipti í starfi.
Hafa reynslu af kennslu eða vinnu með ungu fólki.
Búa yfir faglegum metnaði, frumkvæði, öguðum vinnubrögðum og jákvæðu hugarfari.
Mjög góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
Góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Kostur ef viðkomandi getur kennt fleiri greinar.
Sérstaklega er horft til þess að kennari sýni frumkvæði í starfi, hafi góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Viðkomandi þarf að geta verið hluti af faglegu og hvetjandi námsumhverfi.
Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans. Við skólann er öflugt lærdómssamfélag og mikið lagt upp úr samstarfi kennara innan veggja skólans.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum, s.s. leyfisbréfi, ferilskrá, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem umsækjanda þykir skipta máli.
Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Skólameistari mun óska eftir umboði til að kalla eftir upplýsingum úr sakaskrá áður en gengið er frá ráðningu.
Starfshlutfall er 65-85%.
Auglýsingin gildir í sex mánuði.
Guðjón Ragnar Jónasson
skólameistari
Tölvupóstur: gudjon@fas.is
Sími: 4708070
Starfshlutfall er 65-85%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðjón Ragnar Jónasson
Tölvupóstur: gudjon@fas.is

Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Upplýsingar um starf
Starf
Kennsla íslensku sem annars máls og á framhaldsskólabraut við FAS
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
65-85%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026