Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í dönsku við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-75%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Kennari í dönsku við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ leitar eftir dönsku kennara frá 1. ágúst 2026.

Um er að ræða afleysingu í 1 ár.

Unnið er samkvæmt stefnu og hugmyndafræði skólans um leiðsagnarnám þar sem notaðar eru fjölbreyttar og verkefnamiðaðar kennsluaðferðir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennari ber ábyrgð á undirbúningi kennslu, kennslu og námsmati í dönsku.

Tekur þátt í faglegu samstarfi innan greinar jafn sem á þverfaglegum grunni.

Tekur þátt í sameiginlegum verkefnum, situr reglulega kennarafundi og sinnir sameiginlegri endurmenntun.

Hæfniskröfur

Háskólamenntun í dönsku auk kennsluréttinda.

Reynsla eða hæfni til að starfa við verkefnamiðað leiðsagnarnám.

Góð tölvukunnátta er skilyrði og reynsla í notkun Office365, Innu eða Canvas er kostur.

Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Lipurð í mannlegum samskiptum.

Stundvísi og áreiðanleiki.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Frekari upplýsingar um skólann og stefnur má finna á vef skólans.

Starfshlutfall er 50-75%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Arnar Ingason

Skólameistari

Tölvupóstur: kristjan@fmos.is

Sími: 6952800

Bergþóra Hlín Arnórsdóttir

Tölvupóstur: ba@fmos.is

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í dönsku við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-75%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026