
Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari í íslensku við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
75-100%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Kennari í íslensku við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ leitar eftir íslensku kennara frá 1. ágúst 2026.
Unnið er samkvæmt stefnu og hugmyndafræði skólans um leiðsagnarnám þar sem notaðar eru fjölbreyttar og verkefnamiðaðar kennsluaðferðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari ber ábyrgð á undirbúningi kennslu, kennslu og námsmati í íslensku.
Tekur þátt í faglegu samstarfi innan greinar jafn sem á þverfaglegum grunni.
Tekur þátt í sameiginlegum verkefnum, situr reglulega kennarafundi og sinnir sameiginlegri endurmenntun.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í íslensku auk kennsluréttinda.
Reynsla eða hæfni til að starfa við verkefnamiðað leiðsagnarnám.
Góð tölvukunnátta er skilyrði og reynsla í notkun Office365, Innu eða Canvas er kostur.
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Stundvísi og áreiðanleiki.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Frekari upplýsingar um skólann og stefnur má finna á vef skólans.
Starfshlutfall er 75-100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bergþóra Hlín Arnórsdóttir
Tölvupóstur: ba@fmos.is

Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari í íslensku við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
75-100%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026