Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri hjá FSRE
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
07.05.2026
Verkefnastjóri hjá FSRE
FSRE leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í öflugan hóp verkefnastjóra. FSRE hefur yfirumsjón með húsnæðisöflun fyrir stofnanir ríkisins. Auk þess að stýra hönnun, undirbúningi og eftirliti með framkvæmdum við nýbyggingar felur starfsemin í sér verkefni sem varða breytingar og endurbætur á eldra húsnæði og aðstöðu. Einnig hefur FSRE umsjón með uppbyggingu ofanflóðavarna og náttúruinnviða um land allt.
Hjá FSRE starfa verkefnastjórar á öllum stigum mannvirkjagerðar sem leiða undirbúning og framkvæmd fjölbreyttra framkvæmdaverkefni um allt land. FSRE stuðlar að stöðugum framförum í byggingar- og mannvirkjagerð á Íslandi og leitast við að vera leiðandi afl og í fararbroddi við öflun á góðu en hagkvæmu húsnæði í allra þágu.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf á framsæknum og nútímalegum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnisstjórn í mannvirkjagerð á stigi hönnunar og/eða framkvæmda.
Gerð þarfa- og kostnaðargreininga og kostnaðar- og tímaáætlana
Umsjón með útboðsferli framkvæmdaverkefna
Mat á viðhalds- og endurbótaþörf fasteigna í samráði við önnur svið FSRE
Þátttaka í þróun lausna í samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunarinnar
Þátttaka í framþróun verkefnastjórnunar, sem og annarra umbótaverkefna
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Menntun, vottun eða farsæl reynsla í verkefnastjórn
Reynsla af hönnun og/eða verklegum framkvæmdum er kostur
Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019, um auglýsingar lausra starfa. Um fleiri en eitt stöðugildi getur verið að ræða.
Um FSRE:Við hjá FSRE mótum og rekum aðstöðu sem nýtist öllum íbúum landsins með einum eða öðrum hætti. Við önnumst fasteignir og jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og stýrum framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Okkar leiðarljós er að aðstaða og þjónusta FSRE styðji við verðmætasköpun og velsæld í íslensku samfélagi.
FSRE heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins sem samanstendur af 530 þúsund m² húsnæðis í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Við vinnum jafnframt að fjölbreyttum fasteignaþróunarverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði.
Hjá FSRE starfa rúmlega 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaþróunar, framkvæmda og rekstrar. Við erum spennandi vinnustaður á fleygiferð inn í framtíðina, bjóðum upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Við leggjum áherslu á að styðja starfsfólk okkar í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet. Við brennum fyrir jafnrétti, frábærri vinnustaðamenningu og fjölskylduvænum vinnustað.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri hjá FSRE
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
07.05.2026