
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
08.05.2026
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur
Lífeindafræðingur, líffræðingur eða einstaklingur með sambærilega menntun óskast til starfa á ónæmisfræðideild, Blóðbanka og ónæmisfræðiþjónustu Landspítala. Á deildinni starfa um 30 manns við þjónusturannsóknir, greiningar og ráðgjöf, kennslu heilbrigðisstétta í ónæmisfræði og vísindarannsóknir. Góður starfsandi er ríkjandi og tækifæri til að vaxa í starfi. Meginhlutverk deildarinnar er að vera leiðandi hvað varðar rannsóknir, greiningu, meðferð og eftirlit ónæmis- og ofnæmissjúkdóma á Íslandi. Auk þess veitir deildin alhliða þjónusturannsóknir á sviði gigtar-, bólgu-, ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma.
Við viljum ráða skipulagðan einstakling með faglegan metnað sem vinnur af nákvæmni og samviskusemi. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt og í teymi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingsmiðaða aðlögun. Starfshlutfall er 100% og um dagvinnu er að ræða. Starfið er laust frá og með 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið með styttri vinnuviku er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna í frumuflæðisjáreiningu deildarinnar sem sér um þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum
Þjónusturannsóknir á frumuflæðisjá (FACS)
Þjónusturannsóknir á Luminex tæki
Þróun og uppsetning nýrra greiningaprófa tengdum ónæmissjúkdómum
Þátttaka í kennslu, fræðslu og vísindarannsóknum deildarinnar
Aðstoð við frumuflæðisjá og sorter tæki í þjónustu við Lífvísindasetur hjá Háskóla Íslands
Stuðla að góðri þjónustu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi
Sjálfstæði, skipulagsfærni og yfirsýn í starfi
Nákvæmni í vinnubrögðum og faglegur metnaður
Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Bóklegt og verklegt nám í ónæmisfræði er kostur
Reynsla í notkun frumuflæðisjár (FACSLyric) og Luminex tækja er kostur
Reynsla í notkun forritanna FACSuite og FACSuite clinical er kostur
Reynsla í notkun GLIMS er kostur
Reynsla í að setja upp svipgerðargreininga- og virknipróf fyrir flæðifrumusjár er kostur
Mjög góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífeindafræðingur, líffræðingur, náttúrufræðingur
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 105
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Siggeir Fannar Brynjólfsson
Tölvupóstur: siggeir@landspitali.is
Anna Guðrún Viðarsdóttir
Tölvupóstur: annavid@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.04.2026
Umsóknarfrestur
08.05.2026