Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Röntgenlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands - Tækifæri til að móta þjónustu á Suðurlandi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

08.05.2026

Röntgenlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands - Tækifæri til að móta þjónustu á Suðurlandi

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) óskar eftir sérfræðingi í myndgreiningalækningum í fullt starf eða samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða ótímabundið starf sem er laust frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að öflugum sérfræðingi sem vill taka þátt í að efla og þróa myndgreiningarþjónustu innan HSU. Hér gefst tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á uppbyggingu þjónustu, vinnulag og faglegt samstarf í öflugri heilbrigðisstofnun þar sem ákvarðanir eru nálægt starfseminni og stutt er frá hugmynd að framkvæmd.

HSU sinnir mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu landsins og þjónustar stórt og fjölbreytt svæði. Starfið býður upp á fjölbreytt og áhugaverð verkefni, náið samstarf við aðrar sérgreinar og tækifæri til að taka virkan þátt í að byggja upp innri sérfræðiþjónustu og styrkja samfellu í þjónustu við sjúklinga.

Starfsumhverfið einkennist af öflugu teymi, góðu samstarfi og metnaði til áframhaldandi þróunar. Um er að ræða spennandi starf í vaxandi starfsemi þar sem sérfræðingur fær tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í uppbyggingu mikilvægrar þjónustu. Starfið er á Suðurlandi, í fallegu og fjölskylduvænu umhverfi þar sem lífsgæði eru mikil og stutt í fjölbreytta útivist og þjónustu.

Sveigjanleiki varðandi stafshlutfall og fyrirkomulag getur komið til greina samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining og úrvinnsla myndrannsókna á sviði myndgreiningalækninga

  • Klínískt samstarf og ráðgjöf við aðrar starfseiningar og sérgreinar

  • Þátttaka í skipulagi og þróun myndgreiningarþjónustu innan stofnunarinnar

  • Bakvaktaþjónusta í fjarvinnu samkvæmt nánari skipulagi

  • Þátttaka í gæðastarfi, umbótaverkefnum og teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi

  • Sérfræðiréttindi í myndgreiningalækningum

  • Breið almenn þekking og reynsla í myndgreiningu

  • Kostur er reynsla af ómrannsóknum

  • Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæð vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni og hæfni til samstarfs

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands er leiðandi afl í heilbrigðisþjónustu og hjá okkur færðu tækifæri til að vaxa. Við vinnum markvisst eftir skýrri stefnu, leggjum áherslu á nýsköpun og gefum þér svigrúm til að láta hugmyndir verða að veruleika. Hjá okkur hefur þú áhrif, færð að þróast í starfi og vinnur í umhverfi sem leggur áherslu á traust, gæði, öryggi og ábyrgan rekstur.

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Díana Óskarsdóttir

Forstjóri

Tölvupóstur: diana.oskarsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Röntgenlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands - Tækifæri til að móta þjónustu á Suðurlandi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

08.05.2026