Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf í skjalateymi Vegagerðarinnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sumarstarf í skjalateymi Vegagerðarinnar
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum sumarstarfsmanni til að taka þátt í verkefni sem snýr að stafrænni umbreytingu gagna.
Starfið felur í sér úrvinnslu og stafræna skráningu pappírsgagna sem nú eru skráð í Lotus Notes. Verkefnið er hluti af stærra umbótaverkefni þar sem unnið er að því að draga úr pappírsnotkun og færa gögn yfir í rafrænt form.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fara yfir og vinna úr pappírsskýrslum.
Skanna skjöl og tryggja gæði stafrænnar útgáfu.
Skrá og flokka gögn í viðeigandi kerfi.
Vista skjöl í rafrænu skjalageymslukerfi.
Undirbúa gögn fyrir afhendingu til Þjóðskjalasafns Íslands eftir skönnun.
Hæfniskröfur
Góð almenn tölvukunnátta
Nákvæmni og skipulagshæfni
Sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð í starfi
Reynsla af skjalastjórnun eða gagnavinnslu er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf í skjalateymi Vegagerðarinnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026