Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

08.05.2026

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi

Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag.

Dagdeild skurðlækninga heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa um 30 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Í boði er fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf í sérhæfðu starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf. Deildin tekur á móti öllum sjúklingum, bæði fullorðnum og börnum sem fara í aðgerðir á Landspítala í Fossvogi, s.s. HNE, lýta-, æða-, heila-, tauga- og bæklunarskurðaðgerðir.

Um er að ræða dagaðgerðir og undirbúning sjúklinga fyrir stærri aðgerðir. Sjúklingar sem fara í dagaðgerðir eru útskrifaðir samdægurs en sjúklingar sem fara í stærri aðgerðir eru lagðir inn á legudeild. Einnig sinnir deildin sjúklingum fyrir og eftir inngrip á vegum röntgen- og lungnalækna og tekur á móti bráðasjúklingum, s.s. frá bráðamóttöku, öðrum sjúkrahúsum og að heiman. Opnunartími deildar er frá 07:00 til 22:00 virka daga. Vinnutímaskipulag er vaktavinna og unnið er á tvískiptum vöktum.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð

  • Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda

  • Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar

  • Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og frumkvæði

  • Jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Edda Dröfn Daníelsdóttir

Tölvupóstur: eddadd@landspitali.is

Sími: 824-6014

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

08.05.2026