
Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu
Háskólinn á Akureyri leitar að öflugum og framsýnum sviðsstjóra í nýtt lykilstarf innan skólans. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að móta náms- og kennsluþjónustu og hafa raunveruleg áhrif á starfsemi og framtíðarþróun háskólans. Leitað er að reyndum stjórnanda með góða þekkingu og reynslu af stjórnun þjónustu eða stoðeininga með áherslu á gæði og notendamiðaða nálgun.
Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í stjórnendateymi rektors og vinnur náið með rektor og öðrum stjórnendum að stefnumótun, ákvarðanatöku og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar. Starfið felur í sér leiðtogahlutverk þar sem áhersla er lögð á umbætur, góð samskipti og gagnadrifna nálgun.
Háskólinn á Akureyri er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem ríkir jákvætt starfsumhverfi, öflug liðsheild og metnaður fyrir fagmennsku og þróun sem endurspeglast m.a. í góðum niðurstöðum í könnuninni Stofnun ársins.
Næsti yfirmaður er rektor Háskólans á Akureyri.
Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.
Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á og mótar faglega uppbyggingu náms- og kennsluþjónustu háskólans.
Leiðir stefnumótun, áætlanagerð og eftirfylgni með einingum sem eiga að styðja við kennara og nemendur, í nánu samstarfi við rektor og stjórnendateymi háskólans.
Ber rekstrarlega og fjárhagslega ábyrgð á stoðeiningum sem undir hann heyra.
Leiðir stöðugar umbætur, stafræna þróun og gæðastarf sviðsins.
Eflir samstarf við fræðasvið og aðrar einingar.
Tryggir samræmda, aðgengilega og skilvirka þjónustu við nemendur og starfsfólk háskólans.
Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu situr samráðsfundi rektors með forsetum fræðasviða og sviðsstjórum háskólans. Þær einingar sem heyra undir sviðsstjóra náms- og kennsluþjónustu eru: Miðstöð alþjóðasamskipta, kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð, nemendaráðgjöf, nemendaskrá og upplýsingaþjónusta og bókasafn.
Hæfniskröfur
Háskólapróf að lágmarki meistarastigi (eða sambærilegt) á viðeigandi sviði.
Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma.
Reynsla af breytingastjórnun, þjónustuþróun og samhæfingu ferla kostur.
Reynsla af háskólaumhverfi er kostur.
Reynsla af nemendakerfum er kostur.
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp traust og ná árangri í samstarfi við ólíka hagsmunaaðila.
Þjónustulund, fagmennska og öflug framkvæmdahæfni.
Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða og leiða umbætur með gagnadrifinni nálgun.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Umsókn skal fylgja:
Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda.
Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026