Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Dagvinna meðferðaraðila á Svefnmiðstöð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

21.04.2026

Umsóknarfrestur

05.05.2026

Dagvinna meðferðaraðila á Svefnmiðstöð

Auglýst er eftir öflugum einstaklingi til starfa á Svefnmiðstöð Landspítala. Um er að ræða dagvinnu með föstum vinnutíma og er staðan er tímabundin vegna fæðingarorlofs. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. júní 2026.

Deildin sinnir greiningu og meðferð svefntengdra sjúkdóma. Á Svefnmiðstöðina koma m.a. einstaklingar sem þurfa á svefnöndunartæki að halda og eftirfylgd er m.a. sinnt með fjarþjónustu. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og unnið er í þverfaglegri teymisvinnu.

Við leitum eftir framsæknum, jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Innleiða kæfisvefns,- og öndunarstuðningsmeðferð hjá sjúklingum

  • Eftirlit með meðferð, fjarþjónusta og stuðningur í síma

  • Móttaka sjúklinga, þjónusta og stuðningur

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda sem nýtist í starfi

  • Faglegur metnaður, þjónustulund og umbótahugsun

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Gott tölvulæsi

  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma

  • Góð íslensku kunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, félagsvísindi, heilbrigðisvísindi

Tungumálahæfni: íslenska 5/5

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ólafía Ása Jóhannesdóttir

Tölvupóstur: oasajoh@landspitali.is

Sími: 665-7001

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Dagvinna meðferðaraðila á Svefnmiðstöð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

21.04.2026

Umsóknarfrestur

05.05.2026