
Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi - Iðjuþjálfi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Þroskaþjálfi - Iðjuþjálfi
Verkmenntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir metnaðarfullum þroskaþjálfa/iðjuþjálfa á starfs- og sérnámsbraut skólans. Um er að ræða 80-100% stöðu frá og með 1.ágúst 2026.
Um er að ræða námsbraut fyrir fatlaða nemendur með fjölbreyttar og viðkvæmar stuðningsþarfir. Sérfræðingar vinna samkvæmt stefnu og hugmyndafræði skólans þar sem notaðar eru fjölbreyttar og verkefnamiðaðar kennsluaðferðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjálfun og aðstoð við nemendur á starfs- og sérnámsbraut skólans
Efla hæfni nemenda til sjálfstæðis í námi og í daglegu lífi. Skipulag og uppbygging náms og þjónustu
Gerð einstaklingsáætlanna, sjá um hjálpartæki og aðlögun á skólaumhverfi eftir því sem við á
Þátttaka í teymisvinnu í samvinnu með kennurum, nemendum, foreldrum og fagaðilum
Bera ábyrgð á almennri upplýsingagjöf
Þróun skólastarfs í samvinnu við stjórnendur og aðra fagaðila skólans
Sitja fundi og vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum
Hæfniskröfur
Menntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi/iðjuþjálfi
Reynsla í þjónustu við einstaklinga með viðamiklar og viðkvæmar stuðningsþarfir
Fagleg færni, áhugi á að efla lífsgæði nemenda og auka þátttöku þeirra í samfélaginu
Þekking á skipulögðum vinnubrögðum s.s. TEACCH er kostur
Góð íslenskukunnátta
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Faglegur metnaður, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar
Lipurð í mannlegum samskiptum
Stundvísi og áreiðanleiki
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttafélags. Starfsheiti og stéttarfélag fer eftir því hvort um er að ræða þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa.
Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Við ráðningu verður horft til þess að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Kristín Jónsdóttir
sviðstjóri starfs-og sérnámsbrauta
Tölvupóstur: sigrun.jonsdottir@vma.is
Sími: 464-0300

Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi - Iðjuþjálfi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026