Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Varðstjórar í öryggisdeild ríkislögreglustjóra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Varðstjórar í öryggisdeild ríkislögreglustjóra
Við öryggisdeild ríkislögreglustjóra eru fjórar lausar stöður til umsóknar um starf varðstjóra. Öryggisdeild starfar á þremur starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og unnið er á sólarhringsvöktum. Gert er ráð fyrir að ríkislögreglustjóri setji í stöðurnar frá og með 1. september 2026 eða fyrr, með skipun í huga að allt að sex mánaða reynslutíma loknum. Um er að ræða 100% starf og starf í öryggisdeild er á þjálfunarstigi 3.
Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi þekkingarvinnustaður sem býr að fjölbreyttum og framúrskarandi mannauði, þar starfa um 250 starfsmenn sem sinna margbreytilegum verkefnum. Lögð er áhersla á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og unnið er í samræmi við stefnu embættisins um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu.
Stefna embættis ríkislögreglustjóra:
Tilgangur er að vernda og virða
Sýn okkarer að vinna að öruggara samfélagi
Markmið er að vera þjónustudrifin, framsækin og upplýsandi
Áherslur okkar eru þjónusta - fagmennska - mannauður - tækni - reksturs
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk öryggisdeildar er að tryggja öryggi æðstu stjórnar ríkisins og stuðla að öruggu starfsumhverfi fyrir starfsmenn embætta og ráðuneyta. Deildin gegnir mikilvægu hlutverki við að fyrirbyggja atvik sem geta haft áhrif á öryggi og samfellu í starfsemi ríkisins.
Starfið felur í sér fjölbreytt og ábyrgðarmikil verkefni, þar á meðal:
Staðbundna og hreyfanlega öryggisgæslu
Öryggisgæslu á lykilstofnunum ríkisins, svo sem á Bessastöðum, í forsætisráðuneytinu, á Alþingi og í Hæstarétti Íslands
Framkvæmd öryggisúttekta og áhættumats
Skipulagningu og þátttöku í lög- og öryggisgæslu vegna opinberra heimsókna, alþjóðlegra funda og annarra viðburða
Önnur tilfallandi verkefni á sviði öryggisgæslu
Starfið krefst fagmennsku, áreiðanleika og góðrar hæfni í samskiptum og samvinnu.
Hæfniskröfur
Menntunar- og hæfniskröfur
Próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómapróf í lögreglufræðum (minnst 120 ECTS, þ.m.t. starfsnám)
Haldgóð þekking á lögreglustörfum og reynsla af vettvangsstjórnun er æskileg
Tveggja ára starfsreynsla
Persónulegir eiginleikar
Leiðtogahæfni og greiningarhæfni
Frumkvæði og framsækni
Skýr og jákvæð samskipti
Gott álagsþol og sveigjanleiki í störfum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 4.maí 2026. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Með vísan til 24. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 20. gr. reglugerðar nr. 959/2012, sbr. einnig 30. og 31. gr. reglugerðarinnar þarf starfsmaður að standast bakgrunnskoðun til að hljóta öryggisvottun vegna starfans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Varðstjórar í öryggisdeild ríkislögreglustjóra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026